Um Bóthildi
Bóthildur bókhald ehf. er fjölskyldufyrirtæki staðsett í Súðavík. Hugmyndin að baki heimilisbókhaldsins var í mótun um nokkurn tíma, en okkur fannst sárlega vanta einfalt og skilvirkt bókhaldsforrit fyrir heimili sem allir gætu notað.Þess vegna fórum við út í að hanna og þróa slíkt kerfi sem gæti nýst heimilum vel. Útkoman var Bóthildur.
Bóthildur er hugsuð fyrst og fremst til sölu í stórum upplögum til stofnana, banka, sparisjóða sveitarfélaga og/eða samtaka sem geta dreift kerfinu á ódýrari hátt til viðskiptavina sinna og skjólstæðinga.
Markmið okkar er að Bóthildur komist inn á hvert heimili í landinu og verði þar að föstum fjölskyldumeðlim hvernig sem árar í þjóðarbúinu.
Við leggjum jafnframt metnað okkar í að bjóða upp á hugbúnað sem stenst harðar kröfur og veitir notendum þægilega leið sem auðveldar þeim að takast á við rekstur og fjármál heimilisins hverju sinni.
Þorsteinn Örn Gestsson
Framkvæmdastjóri
Netfang: bothildur@bothildur.org
Hlynur Bjarki Karlsson
Tækni og framleiðsla
Netfang: support@bothildur.org
Ómar Már Jónsson
Sölu og markaðsmál
Netfang: sales@bothildur.org
Sagan á bak við nafnið
Nafnið Bóthildur helgast fyrst og fremst af því að það tengist orðinu bati eða þeim umbótum sem heimilisbókhald getur fært notendum sínum. Segja má að frú Bóthildur haldi fast um búrlyklana og gæti þess að engrar óráðsíu verði vart í peningamálum.
Nafnið Bóthildur er líka þekkt sem nafn á álfkonu sem launar jarðneskum manni greiða með stórum fégjöfum og gulli (saga úr Hrútafirði) og má því segja að skynsamlegt sé og gróðavænlegt að leggja lag sitt við Bóthildi.
Nafnið tengist líka gamalli þjóðsögu úr nágrenni Súðavíkur, en innst í Álftafirði eru hrikaleg gil sem skera fjallið frá klettabrún niður á jafnsléttu og kallast Valagil. Sagt er að kona að nafni Bóthildur hafi verið að koma vestan úr Önundarfirði með son sinn ungan. Hreppti hún þoku á fjallinu og gekk of nærri gilbrúninni. Vildi ekki betur til en svo að hún byrjar að renna í átt að gilbrúninni en nokkur halli var niður að gilinu og jörð hál vegna úðans úr fossinum. Sagan segir að þegar hún hafi áttað sig á aðstæðum hafi hún fleygt frá sér barninu og hafi með því bjargað lífi þess en fallið sjálf í gilið.
Einn fyrrum íbúi Súðavíkurhrepps, Jón Indíafari (f. 1593), skrifar í fræga Reisubók sína að Bóthildur þessi hafi örmagnast við gilbrúnina og dáið þar. Smalar sem gættu kinda á fjallinu heyrðu undarleg hljóð og sögðu sóknarprestinum frá. Hann lét boð út ganga meðal bænda og vinnumanna í Álftafirði um að vígbúast svo ráða mætti niðurlögum óvættar þeirrar sem fjallið gisti. Girtir atgeirum frá sjálfum Danakonungi komu mennirnir á staðinn og fundu drenginn lifandi og færðu hann til byggða.
Fylgist vel meðGóður stuðningur er við áætlanagerð í kerfinu og hefur notandi nokkuð frjálsar hendur með hvernig hún er sett upp. Bóthildur fylgist svo með færslum og lætur notanda vita ef farið er fram yfir áætlun.
Er meðvituðAllar lánagreiðslur má skrá inn í ákveðinn flokk og sundurliða í höfuðstól annars vegar og hins vegar vexti/gjöld. Þessar upplýsingar má svo kalla fram í yfirliti þar sem raunafborganir sjást vel.
Bóthildur er sjálfstæðHugbúnaðurinn er sérhannaður og keyrir á vél notandans ein og sér. Notandi þarf því ekki nettengingu né annan hugbúnað til viðbótar s.s. Excel.





