Íslenska English Dansk
HEIM UM BóTHILDI SKJáMYNDIR UMFJöLLUN HVERNIG GET éG KEYPT? HAFðU SAMBAND
Bóthildur > Umfjöllun um Bóthildi

Bóthildur í fréttum

Bæjarins besta | 04. feb. 2009 15:09

Bóthildur slær í gegn

Heimilisbókhaldið Bóthildur er nú farið að streyma inn á heimili landsmanna, en Súðavíkurhreppur færði öllum íbúum sveitarfélagsins forritið að gjöf fyrir skemmstu. Nokkur sveitarfélög hafa nú fengið Bóthildi til að dreifa frítt til sinna íbúa en einnig keypti Rafiðnaðarsambandið 600 stykki til að gefa sínum viðskiptavinum. Jafnframt eru fleiri sveitarfélög, bankar og stofnanir ýmiskonar að skoða það að koma Bóthildi til sinna skjólstæðinga/viðskiptavina. „Þetta hefur farið langt framar vonum og bara mjög gaman að því“, segir Þorsteinn Örn Gestsson hönnuður Bóthildar.

Fara á vísir

Mánudagur 26. janúar 2009

Bóthildur fyrir félagsmenn

Miðstjórn hefur keypt heimilisbókhaldsforritið Bóthildi og er það afhent félagsmönnum þeim að kostnaðarlausu á skrifstofunni eða sent heim til þeirra.

Rafís

Bæjarins besta, 02. jan. 2009 09:34

Hvert heimili fékk bókhaldsforrit

Súðavíkurhreppur hefur gefið hverju heimili í hreppnum geisladisk með bókhaldsforriti, til að hjálpa fólki að halda utan um heimilsbókhaldið. Forritið heitir Bóthildur en höfundur þess býr í Súðavík. Um sjötíu heimili eru í þorpinu og fær hver fjölskylda eitt eintak. Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri, segir þessa gjöf ekki vera sneið til þeirra sem ekki eru með fjármál heimilisins í lagi eða þeirra sem skulda. Frá þessu var greint á ruv.is.

Fara á vísir

Mánudagur, 29. desember 2008

Hrós dagsins fær „Bóthildur“ í Súðavík

Sveitarstjórn Súðavíkur með Ómar Má Jónsson sveitarstjóra í farabroddi gaf öllum heimilum í hreppnum nýtt og einfalt forrit, „ Bóthildi“ til að færa heimilisbókhaldið. Það er heimamaðurinn og frumherjinn Þorsteinn Örn Gestsson sem smíðaði forritið og leggur hann til að það verði sent inn á hvert heimili landsins til stuðnings þeim sem vilja ná betur utan um heimilisfjármálin: „ Þegar fjölskyldan ákvað að byrja á heimilisbókhaldi vegna aðstæðna sem voru uppi, leitaði ég á netinu en fann ekkert nógu og gott. Ég ákvað því að smíða mitt eigið forrit. Það er fallegt og gott og alveg eins og ég vil hafa það. .. Helst vildi ég að ríkisstjórnin tæki Bóthildi og sendi inn á öll heimili landsins. Það myndi hjálpa fólki að takast á við fjárhagserfiðleikana“ segir Þorvaldur Örn í viðtali við Morgunblaðið í dag. – Góð hugmynd sem sjálfssagt er að fylgja eftir.

Jón Bjarnason blogg