Íslenska English Dansk
HEIM UM BóTHILDI SKJáMYNDIR UMFJöLLUN HVERNIG GET éG KEYPT? HAFðU SAMBAND
Bóthildur > Heim

Nýtt bókhaldskerfi fyrir heimili

Bóthildur er nýtt, notendavænt bókhaldskerfi sem er hugsað fyrir þá sem vilja öðlast betri yfirsýn yfir fjárhag heimila sinna og ná betri stjórn á útgjöldum.

Bóthildur er notendavænt kerfi og viðmót þess er nútímalegt þar sem gögnin eru sett fram á skýran og einfaldan hátt með myndrænni framsetningu og sundurliðuðum yfirlitum.



Allir geta nýtt sér kerfið

Helstu skráningargluggar eru einfaldir og aðgengilegir hvar sem er í kerfinu. Notandinn ræður sjálfur hversu mikið hann flokkar hverja færslu við bókun en færlsur er hægt að flokka eftir t.d. yfir-og undirflokkum, tekna og útgjalda og fjölskyldumeðlimum.

Stofnun og notkun svokallaðra reglulegra færslna sparar mikinn skráningartíma. Við stofnun slíkrar grunn-færslu er færslan skilgreind varðandi tegund, flokkun, upphæð og bókunartíðni eftir því sem við á. Á tiltekinni dagsetningu þegar að því kemur að bóka færsluna þarf síðan eingöngu að staðfesta færsluna, jafnframt því sem þá er hægt að bæta við athugasemdum við færsluna og breyta innihaldi upplýsingareita (úr grunnfærslunni) eftir því sem þörf er á hverju sinni.

Mikilvægt er að notandinn hafi góða heildarsýn yfir fjárhagsstöðuna hverju sinni. Í þeim tilgangi inniheldur aðalskjámynd kerfisins helstu upplýsingar um núverandi stöðu.

Er minnug
Reglulegar færslur þarf ekki að endurtaka. Eingöngu þarf að frumstilla upplýsingarnar og velja svo tímabil endurtekningar. Við hverja endurtekningu er nóg að staðfesta að færslan hafa farið fram.
Er hjálpsöm
Með Bóthildi fylgir öflug hjálp sem er aðgengileg frá öllum skjámyndum og sýnir hvernig innslætti skuli háttað.
Bóthildur er sjálfstæð
Hugbúnaðurinn er sérhannaður og keyrir á vél notandans ein og sér. Notandi þarf því ekki nettengingu né annan hugbúnað til viðbótar s.s. Excel.